245.is  

 

   

Forsíða

    

Eldri fréttir

    

Viðtöl og greinar

    

Þankabrot

    

Nýir Sandgerðingar

    

Aðsent efni 

    

Myndasafn 

    

Smáauglýsingar 

    

Sandgerðisdagar 

    

Um vefinn

    

Auglýsingaverð

    

Hafa samband

   

Leitarvél














 



 

 Þjónusta í Sandgerði  

   

Afþreying

   

Bankar

    

Bensínstöðvar

    

Bílaviðgerðir 

    

Dagvöruverslun

    

Ferðir/Flutningar

    

Félög

    

Gisting

   

Gjafavörur

    

Heilsa og útlit

    

Kirkjustarf

   

Menning og listir

    

Opinber þjónusta

    

Sjávarútvegur

    

Skólar

    

Söfn/Sýningar

    

Tölvur og Internet

    

Veitingahús/Salir

    

Vélsmiðja

    

Verktakastarfsemi


 Fréttir

Þú ert hér > Forsíða > Fréttir

8.3.2010 22:12:04
Dagmar Þráinsdóttir er Íþróttamaður ársins 2009

Dagmar Þráinsdóttir var kjörin Íþróttamaður ársins 2009.  Athöfnin fór fram í Vörðunni síðastliðinn föstudag og bárust 5 tilnefningar frá Golfklúbbi Sandgerðis, Íþróttaráði Sandgerðisbæjar, Knattspyrnudeild Reynis, Körfuknattleiksdeild Reynis og Sunddeild Reynis.

Hér að neðan má sjá myndband frá athöfninni:

Hér að neðan er samantekt af öllum tilnefningunum:

Tilnefning Golfklúbbs Sandgerðis

Þór Ríkharðsson Norðurgötu 52, Sandgerði.

Þór byrjaði ungur að stunda golfið, tók sér nokkurra ára hvíld ,en byrjaði aftur vorið 2009.Þegar hann byrjaði aftur þá byrjaði hann með hvelli og hefur náð undraverðum árangri á stuttum tíma. Þegar hann byrjaði sl vor þá var hann með 19 í forgjöf en endaði árið með 6,5 í forgjöf. Þetta er einstakur árangur á svona stuttum tíma.

Þór tók þátt í meistaramóti klúbbsins.  Þar keppti hann í 1. flokki og sigraði á glæsilegan hátt.  Hann varð stigameistari GSG 2009. Hann sigraði í haustmótaröð Golfklúbbs Suðurnesja.

Þór hefur sýnt ótrúlegar framfarir á skömmum tíma og á fyllilega skilið viðurkenningu fyrir árangur sinn.

Hann er góður félagi og góð fyrirmynd annarra. Þeir sem spilað hafa með honum hafa lofað hann fyrir prúðmannlega framkomu og hann ber mikla virðingu fyrir mótherjum sínum.

Fyrir hönd GSG
Guðmundur Einarsson
Framkvæmdastjóri

 

Tilnefning Íþróttaráðs Sandgerðisbæjar:

Dagmar Þráinsdóttir
Breiðhóli 28
Sandgerðisbæ

Dagmar Þráinsdóttir hefur stundað knattspyrnu frá unga aldri.  Hún lék fyrst með yngri flokkum Ksf. Reynis og síðan með meistaraflokki GRV.  Hún lék sinn fyrsta leik með meistaraflokki GRV í 1. deild árið 2005.

Hún átti þátt í að liðið komst upp í efstu deild árið 2008.  Dagmar lék í nánast öllum leikjum liðsins í Pepsi-deildinni á árinu 2009.

Liðið náði þá þeim glæsilega árangri að tryggja sér setu í efstu deild með því að enda í sjöunda sæti í deildinni. Það er besti árangur sem meistaraflokkur á vegum Knattspyrnufélagsins Reynis hefur náð í deildarkeppni.

Dagmar lék sinn fyrsta landsleik fyrir Ísland á árinu 2009. Þá var hún í byrjunarliði í U-19 liði Íslands gegn Færeyjum í Þorlákshöfn í júlí.
Hún hefur verið að æfa með U-19 liði Íslands í vetur ásamt því að æfa með meistaraflokki Grindavíkur, þar sem samstarfinu um GRV hefur verið slitið. Það sýnir einbeitni hennar að hún lætur sig ekki muna um að sækja æfingar um langan veg.

Dagmar er sönn íþróttakona sem lætur ekki mótlæti hindra sig í að ná markmiðum sínum. Hún er þrautseig og öguð keppnismanneskja, en um leið góður félagi í sínum hóp. Dagmar er prúð og yfirveguð innan vallar sem utan og er því verðug fyrirmynd ungra íþróttamanna.

Íþróttaráð Sandgerðisbæjar

 

Tilnefning Knattspyrnudeildar Reynis

Knattspyrnudeild Reynis tilnefnir Hjört Fjeldsted fyrirliða meistarfloks karla til Íþróttamanns ársins 2009 í Sandgerði.

Hjörtur Fjeldsted átti einstaklega gott tímabil hjá knattspyrnuliði Reynis tímabilið 2009. Hann spilaði alla 22 leiki liðsins í 2. deild á Íslandsmótinu og alla 3 leikina í Bikarkeppni KSÍ líka sem Reynir tók þátt í og þykir það gott hjá 29 ára gömlum varnarmanni sem sýndi oft á tíðum mikla leiðtogahæfileika innan vallar sem utan.

Hjörtur Fjeldsted sem er alla jafnan kallaður (Turninn) af meðspilurum sínum sökum hæðar sinnar og styrk í loftinu er sérlega duglegur og ósérhlífinn leikmaður sem leggur sig alltaf 100% fram fyrir liðið.

Hjörtur Fjeldsted var eins og áður hefur komið fram fyrirliði í sterku Reynisliði síðasta sumar og það munaði aðeins einu stigi að liðið færi upp um deild en það var sannkallaður úrslitaleikur í lok tímabils þar sem Reynir tók á móti grönnu sínum úr Njarðvík fyrir framan yfir 1000 áhorfendur en því miður endaði sá leikur 2-2 og það dugði Reynismönnum ekki til að fara upp um deild.

Núverandi þjálfarar og forráðamenn gera miklar væntingar til Hjartar í sumar og hann verður án efa lykilleikmaður tímabilið 2010 eins og tímabilið 2009.
Hjörtur er Reynisliðinu mjög mikilvægur þar sem hann getur miðlað af reynslu sinni og færni til yngri og óreyndari leikmanna.

Hann er mikill keppnismaður og sannkallaður varnarjaxl en þó háttvís innan sem utan vallar og sýnir gott fordæmi.

Það er því ekki að ástæðulausu að við í Knattspyrnudeild Reynis teljum að Hjörtur komi sterklega til greina sem Íþróttamaður ársins 2009.

Knattspyrnudeild Reynis

 

Tilnefning körfuknattleiksdeildar

Magnús Sigurðsson hefur spilað með meistaraflokk síðan  1996. Hann varð fljótlega einn af máttarstólpum liðsins og hefur ætíð stundað íþróttina af mikilli elju og er þar öðrum til fyrirmyndar.

Það er von okkar í körfuknattleiksdeildinni að hann eigi eftir að eiga mörg góð ár áfram með deildinni. Hann er þess vegna verðugur fulltrúi deildarinnar á 30 ára afmælisári deildarinnar.

Kveðja Sveinn Hans Gíslason
K.K.D.Reynis Sandgerði

 

Tilnefning Sunddeildar Reynis

Sunddeildin tilnefnir nú Markús Guðmundsson öðru sinni til Íþróttamanns ársins í Sandgerðisbæ. Það er ekki að ástæðulausu. Frá því að sunddeildin tók til starfa með opnun nýrrar sundlaugar í Íþróttamiðstöðinni hefur Markús sýnt óþrjótandi elju og dugnað við æfingar.
Segja má að hann vanti varla á æfingu og hann leggur alltaf allt sitt af mörkum á hverri æfingu, enda sýnir hann stöðugar framfarir. Markús er sérlega stundvís. Framkoma hans á vettvangi sunddeildar og utan þess er óaðfinnanleg. Hann er góður félagi í hópnum. Hann gengur því á undan með góðu fordæmi og er er einstaklega góð fyrirmynd.

F. h. Sunddeildar,
Gróa Axelsdóttir.

 

Óskar Gunnarsson, Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar.
Hólmfríður Skarphéðinsdóttir, Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar.
Haraldur Hinriksson, Bæjarstjórn Sandgerðisbæjar.
Tyrfingur Andrésson, Aðalstjórn Ksf. Reynis.
Guðmundur Einarsson, Golfklúbbur Sandgerðis.
Elín B. Gissurardóttir, Íþróttaráð Sandgerðisbæjar.
Lóa B. Gestsdóttir, Íþróttaráð Sandgerðisbæjar.

Myndir: Þráinn Maríusson
Myndband: Ólafur V. Sigurðsson
lifid@245.is

 



Prentvæn útgáfa

   
    Til baka